14. ágúst 2018
Hluthafafundur í Arion banka hf. 5. september 2018

Hluthafafundur í Arion banka hf. verður haldinn í höfuðstöðvum bankans að Borgartúni 19, 105 Reykjavík, þann 5. september 2018, kl. 16:00. Fundurinn fer fram á íslensku, en boðið verður upp á túlkaþjónustu á ensku.
Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins:
- Tillaga um arðgreiðslu til hluthafa bankans
- Breyting á stjórn bankans
Kosning eins nýs stjórnarmanns sem starfi fram að næsta aðalfundi bankans - Kosning tveggja nefndarmanna í tilnefningarnefnd
- Tillaga um þóknun nefndarmanna í tilnefningarnefnd
- Tillaga um breytingar á samþykktum
a. Lagt er til að ákvæði til bráðabirgða í samþykktum Arion banka hf. sem felur í sér undanþágu frá ákvæðum samþykkta um boðunarfrest til hluthafafunda, verði fellt brott í heild sinni. Samkvæmt ákvæðinu skyldi það falla niður þegar hlutabréf Arion banka hf. yrðu tekin til viðskipta hjá Nasdaq á Íslandi.
b. Þá er lagt til að viðauki nr. 1 við samþykktir Arion banka hf. verði felldur brott í heild sinni. Viðauki þessi fjallar um heimild til kaupa á eigin bréfum sem veitt var á hluthafafundi 12. febrúar 2018. Heimild þessi var nýtt í febrúar 2018.
- Önnur mál
Allar nánari upplýsingar um fundinn má finna á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm.