Kynningarfundur um hluthafasamkomulag og kauprétt í sprotafyrirtækjum
Föstudaginn 23. febrúar stendur Startup Reykjavík fyrir kynningarfundi í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Á fundinum verður fjallað um hluthafasamkomulag, kauprétti og ráðningu nýrra starfsmanna í sprotafyrirtækjum sem allt eru viðfangsefni sem oft vefjast fyrir sprotafyrirtækjum. Fundurinn hefst kl. 12:00 og stendur til kl. 13:30.
Dagskrá fundarins:
- Á þitt fyrirtæki heima í Startup Reykjavík?
Edda Konráðsdóttir frá Icelandic Startups - Nýsköpunarlögin 2016
Bergþóra Halldórsdóttir frá Samtökum atvinnulífsins - Ráðgjöf um gerð kaupréttarsamninga
Ásgeir Skorri Thoroddsen frá KPMG - Notkun kaupréttarsamninga í sprotafyrirtæki
Magnús Ingi Óskarsson frá Calidris - Hluthafasamkomulag
Einar Gunnar Guðmundsson frá Arion banka
Startup Reykajvík er viðskiptahraðall þar sem tíu sérvalin sprotafyrirtæki njóta ráðgjafar og leiðsagnar þaulreyndra sérfræðinga í tíu vikur í þeim tilgangi að hraða þróunarferlinu og koma vöru á markað.
Opið er fyrir umsóknir á startupreykjavik.is til og með 8. apríl. Hraðallinn hefst þann 11. júní og lýkur þann 17. ágúst. Óskað er eftir umsóknum frá öflugum teymum með nýjar lausnir á sviði tækni og skapandi greina, ætlaðar alþjóðamarkaði.
Startup Reykjavík er samstarfsverkefni Arion banka og Icelandic Startups.