Tækifæri og áskoranir - fundur í Borgartúni 19
Í dag, þriðjudaginn 15. mars, verður Félag háskólakvenna með áhugaverðan fund í Borgartúni 19 sem hefst kl. 17:30.
Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður Arion banka í nýsköpunarmálum, verður með erindi um Startup Reykjavík og fyrirtækjadrauma kvenna og Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við Viðskiptadeild Háskóla íslands, mun fjalla um helstu tækifæri og áskoranir á seinna lífsskeiði ævinnar.
Árelía er mörgum kunn en hún hefur meðal annars gefið út fjórar bækur, þar af eina skáldsögu síðastliðið vor. Hún vinnur nú að bók um efni fyrirlestrarins.
Allir eru hjartanlega velkomnir en nauðsynlegt er að skrá sig á felaghaskolakvenna@gmail.com.