Nýir forstöðumenn yfir verðbréfamiðlun hjá Arion banka

Nýir forstöðumenn yfir verðbréfamiðlun hjá Arion banka

Nýir forstöðumenn yfir verðbréfamiðlun hjá Arion banka - mynd

Nýverið tóku nýir forstöðumenn við verðbréfamiðlun hjá Arion banka. Haraldur Hilmar Heimisson hefur tekið við starfi forstöðumanns hlutabréfamiðlunar og Gunnar Örn Erlingsson starfi forstöðumanns skuldabréfamiðlunar.

Haraldur hefur starfað á fjármálamarkaði í tæp 20 ár. Hann hefur starfað hjá verðbréfamiðlun Arion frá árinu 2014 en starfaði hjá MP Banka frá árinu 2006. Haraldur er með hagfræði- og MBA-gráðu frá Louisiana Tech University og er með próf í verðbréfaviðskiptum.

Gunnar hefur einnig starfað á fjármálamarkaði í tæp 20 ár, þar af við skuldabréfamiðlun hjá Arion banka síðastliðinn fimm ár. Þar áður starfaði hann í eigin viðskiptum Kviku, Íslandsbanka og hjá forverum þeirra. Gunnar er með B.Sc. í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands, M.Sc. í iðnaðarverkfræði frá University of Washington í Seattle og er með próf í verðbréfaviðskiptum.

  
Haraldur Hilmar Heimisson

 
 Gunnar Örn Erlingsson