Lýður Þór Þorgeirsson ráðinn framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion banka

Lýður Þór Þorgeirsson ráðinn framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion banka

Lýður Þór Þorgeirsson ráðinn framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion banka - mynd
Lýður Þór Þorgeirsson ráðinn framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion banka - mynd

Lýður Þór Þorgeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion banka og tekur við starfinu þann 25. október. Starf framkvæmdastjóra fjárfestingarbankasviðs heyrir beint undir bankastjóra og tekur Lýður sæti í framkvæmdastjórn bankans.

Lýður er með B.Sc. gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá MIT Sloan School of Management auk þess að hafa lokið löggildingu í verðbréfamiðlun. Frá árinu 2010 starfaði hann hjá GAMMA Capital Management hf., fyrst sem sjóðsstjóri ýmissa fagfjárfestasjóða en frá árinu 2013 sem framkvæmdastjóri sérhæfðra fjárfestinga. Lýður er kvæntur Ragnheiði Harðardóttur og eiga þau þrjá drengi.

Iða Brá Benediktsdóttir sem gegnt hafði starfi framkvæmdastjóra fjárfestingarbankasviðs frá árinu 2016 tók við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Arion banka þann 1. júlí.

Um fjárfestingarbankasvið Arion banka

Fjárfestingarbankasvið Arion banka samanstendur af fyrirtækjaráðgjöf, markaðsviðskiptum og greiningardeild. Meginhlutverk sviðsins er að leiða saman kaupendur og seljendur á fjármálamarkaði og veita fyrirtækjum og fjárfestum ráðgjöf um uppbyggingu rekstrar og efnahags. Þannig eru helstu þjónustuþættir fjárfestingarbankasviðs miðlun verðbréfa og gjaldeyris, fyrirtækjaráðgjöf og greining. Á sviðinu starfa um 30 sérfræðingar.