Mikill fjöldi á fræðslufundi um greiðslur úr lífeyrissparnaði

Mikill fjöldi á fræðslufundi um greiðslur úr lífeyrissparnaði

Mikill fjöldi á fræðslufundi um greiðslur úr lífeyrissparnaði - mynd

Um 220 manns mættu á vel heppnaðan fræðslufund um greiðslur úr lífeyrissparnaði sem haldinn var í höfuðstöðvum Arion banka þriðjudaginn 19. apríl.

Helga Sveinbjörnsdóttir, sérfræðingur hjá eignastýringu, kynnti reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar, skattalega meðferð lífeyrissparnaðar og samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun.

Gestir fundarins voru áhugasamir og talsverðar umræður sköpuðust undir lok fundar.