Arion banki stækkar tvo flokka sértryggðra skuldabréfa
Arion banki hf. lauk í gær útboði á tveimur útistandandi flokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq Iceland.
Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 1.180.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,25% og verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 2.020.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,30%. Í heild bárust tilboð upp á 4.340 milljónir kr.
Skuldabréfaflokkarnir eru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs og hafa verið teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á næsta verðtryggða útboð í júní.