10. ágúst 2020.jpg)
Arion banka mótinu 2020 hefur verið aflýst
.jpg)
Sú ákvörðun hefur verið tekin að aflýsa Arion banka mótinu í fótbolta 2020, sem fara átti fram helgina 15. og 16. ágúst nk. á félagssvæði Víkings í Fossvogi. Tæplega 2.500 stúlkur og drengir í 7. og 8. flokki voru búin að skrá sig til leiks.
Því miður bjóða aðstæður ekki upp á jafn fjölmennan viðburð og Arion banka mótið er. Við hvetjum alla fótboltasnillingana sem voru skráðir á mótið til þess að halda áfram að æfa sig í öruggum aðstæðum.