Útibúið í Garðabæ 40 ára

Útibúið í Garðabæ 40 ára

Frétt Þjóðviljans frá 1976. Alla fréttina má sjá í pdf skjali hér neðst í fréttinni. - myndFrétt Þjóðviljans frá 1976. Alla fréttina má sjá í pdf skjali hér neðst í fréttinni.

Þann 1. september 1976 opnaði Búnaðarbanki Íslands útibú í Garðabæ. Það sama ár fékk Garðabær kaupstaðaréttindi. Fyrstu starfsmenn útibúsins voru Svavar Jóhannesson, útibússtjóri, Gísli Helgason, féhirðir og Erla Hjaltadóttir bankaritari. Frá árinu 1985 hefur útibúið verið staðsett við Garðatorg og síðar á árinu verður útibú Arion banka í Garðabæ eina bankaútibúið í bænum.

Meðfylgjandi er frétt úr Garðapóstinum þar sem þessum tímamótum eru gerð góð skil og rætt við Kristbjörgu Héðinsdóttur sem hefur verið útibússtjóri frá því í apríl 2013. Einnig fylgir með frétt Þjóðviljans frá árinu 1976 þar sem greint er frá opnun útibúsins.

Garðapósturinn - frétt
Þjóðviljinn - frétt