Skert þjónusta um helgina

Við þurfum að sinna viðhaldi gagnagrunna aðfaranótt sunnudagsins 19. nóvember næstkomandi og verður því ákveðin grunnþjónusta óvirk á milli klukkan 2.00 til 9.00. Ekki er hægt að útiloka að einhverjar truflanir eigi sér jafnframt stað fram eftir degi.
Á þessum tíma verður því eftirfarandi þjónusta skert:
- Aðgerðir í netbanka og appi
- Aðrar aðgerðir en úttektir í hraðbönkum
- Debetkort munu virka en debetkortareikningar munu ekki sýna rétta stöðu vegna færslna sem koma inn á þessum tíma
Kreditkort munu virka eðlilega.
Þjónusta á Keflavíkurflugvelli
Í útibúi okkar á Keflavíkurflugvelli verður ekki hægt að framkvæma eftirfarandi á umræddu tímabili:
- Gjaldeyrisviðskipti með reiðufé hjá gjaldkerum
- Almennar fjárhagslegar aðgerðir hjá gjaldkerum
Viðskiptavinir á Keflavíkurflugvelli munu hins vegar geta tekið út gjaldeyri hjá gjaldkerum okkar með korti ásamt því að nota gjaldeyrishraðbankana.
Tryggingar í appinu
Þá verða tryggingar óaðgengilegar í Arion appinu frá og með klukkan 14.00 á föstudaginn 17. nóvember og fram yfir helgi.