Fasteignaskrá óaðgengileg um helgina og því ekki hægt að fara í gegnum greiðslumat
.jpg)
Vegna flutninga á kerfum Fasteignaskrár frá Þjóðskrá til HMS verða öll kerfi Fasteignaskrár óaðgengileg frá klukkan 13 föstudaginn 18. nóvember og mögulega alveg til miðnættis á sunnudag. Greiðslumatskerfi okkar á arionbanki.is nýtir gögn frá Fasteignaskrá og því verður ekki hægt að fara í gegnum greiðslumat á meðan á flutningnum stendur.
Frá hádegi á morgun, föstudag, og fram eftir helginni verður þar af leiðandi ekki hægt að klára umsóknir um lán sem krefjast greiðslumats. Á þetta við um íbúðalán, bílalán og stærri fyrirgreiðslur.
Við biðjumst velvirðingar á þessu en strax á mánudag verður hægt að fara í greiðslumat á vefnum og klára lánaumsóknir.