Arion banki lýkur víxlaútboði

Arion banki lýkur víxlaútboði

Arion banki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 900 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 780 milljónir kr. á 5,25% flötum vöxtum. 

Stefnt er á að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Íslandi í lok janúarmánaðar.