Vinningshafi í sumarleik Bláa kortsins

Risa sumarleikur Bláa kortsins hefur vakið mikla athygli í sumar. Öll sem skráðu sig í Arion fríðindi og notuðu Bláa kortið fóru sjálfkrafa í pott og áttu möguleika á að vinna glæsilega vinninga.
Að þessu sinni var það Víkingur Hjörleifsson sem hreppti stóra vinninginn og fékk að launum hótelgistingu fyrir tvo hjá Berjaya Hotels, ásamt gjafabréfum frá Ísbúð Huppu, Sambíóunum og Te & kaffi.
Við óskum honum innilega til hamingju með þennan glæsilega vinning! Við viljum jafnframt þakka öllum sem tóku þátt í leiknum í sumar.
