Ofnæmisskynjari, morgunverðarskál með halla og gluggaopnari fyrir ketti fengu verðlaun
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna lauk nú nýlega og var Arion banki aðalstyrktaraðili í ár líkt og fyrri ár.
Þátttakendur keppninnar, sem er ætluð nemendum í 5. – 7. bekk, tóku þátt í fjármáladegi í höfuðstöðvum Arion banka laugardaginn 21. júní en lokahóf keppninnar var haldið sunnudaginn 22. maí í Háskólanum í Reykjavík og þar var tilkynnt um úrslit.
Fjöldi frábærra hugmynda komu fram en það voru 39 hugmyndaríkir krakkar sem komust í úrslit með 27 hugmyndir.
Hér fyrir neðan má sjá nöfn sigurvegaranna og skemmtilegt myndband frá fjármáladeginum. Myndir af hópunum má sjá hér fyrir ofan.
Eftirfarandi fengu verðlaun fyrir 1. sætið:- Hekla Ylfa Einarsdóttir í 5. bekk Hofsstaðaskóla, fyrir hugmyndina Baðkarspípari.
- Hrafnhildur Haraldsdóttir í 6. bekk Árbæjarskóla og Hafsteinn Yngvi Kolbeinsson í 6. bekk Langholtsskóla, fyrir hugmyndina Hitaskiltið.
- Guðrún Erlendsdóttir og Mónika Andjani í 7. bekk Húsaskóla, fyrir hugmyndina Hneppu handklæðið.
- Björn Þór Hrafnkelsson í 5. bekk Stóra Vogaskóla, fyrir hugmyndina Gluggaopnari fyrir ketti – MurrinnX.
- Sonja Ingimundardóttir í 6. bekk Hofsstaðaskóla, fyrir hugmyndina Ofnæmiskynjari.
- Áshildur Þóra Heimisdóttir í 7. bekk Sæmundarskóla, fyrir hugmyndina Teljandi fótbolti.
- Ásdís Ólafsdóttir í 5. bekk Hofsstaðaskóla, fyrir hugmyndina Morgunverðarskál með halla.
- Óskar Aron Stefánsson og Indriði Ægir Þórarinsson í 6. bekk Varmahlíðarskóla, fyrir hugmyndina Markaskráarappið.
- Sindri Immanúel í 7. bekk í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri, fyrir hugmyndina Rafknúinn hurðarlokari.