Fjarþjónusta í ljósi aðstæðna

Fjarþjónusta í ljósi aðstæðna

Fjarþjónusta í ljósi aðstæðna - mynd

Okkur er umhugað um velferð viðskiptavina okkar og starfsfólks. Vegna COVID-19 faraldursins munum við því frá og með morgundeginum, 5. október, loka á heimsóknir í útibú okkar nema þær séu bókaðar fyrir fram og þá einungis fyrir brýn erindi. Við hvetjum viðskiptavini okkar til að nýta aðrar þjónustuleiðir eins og Arion appið og netbankann þar sem hægt er að framkvæma nær allar aðgerðir.

Við erum áfram til staðar fyrir þig og þú getur heyrt í okkur í síma 444 7000, sent okkur tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is eða haft samband við okkur í gegnum netspjall á www.arionbanki.is. Einnig eru hraðbankar okkar aðgengilegir um land allt og bjóða upp á innlagnir, úttektir og margt fleira.

Ef erindið er brýnt getur þú bókað fund

Ef úrlausnarefnið er brýnt getur þú óskað eftir afgreiðslu í útibúi. Þjónusta í útibúi er þó aðeins veitt ef erindið er þess eðlis að ekki er unnt að leysa úr málum nema augliti til auglits. Í slíkum tilvikum þarftu að bóka tíma sérstaklega. Hringdu í okkur, sendu tölvupóst eða skráðu þig hér fyrir neðan og við höfum samband við þig varðandi tímabókun.

Bóka fund í útibúi