Arion banki kaupir til baka skuldabréf að fjárhæð 7 milljarðar króna
Í dag, 7. mars, keypti Arion banki til baka skuldabréf að nafnvirði 65.000.000 bandaríkjadala, auk áfallinna vaxta, eða sem nemur að jafnvirði um 7 milljörðum íslenskra króna. Höfuðstóll skuldabréfsins nam 747.481.000 bandaríkjadölum (97 milljarðar kr.) við útgáfu í janúar 2016.
Skuldabréfið er í eigu Kaupþings og var útgáfa þess liður í aðgerðum sem sneru að losun fjármagnshafta. Eftirstöðvar höfuðstóls eftir endurkaup eru 100.000.000 bandaríkjadala (11 milljarðar íslenskra króna). Endurkaupin eru þáttur í lausafjár- og skuldastýringu Arion banka.