Standard and Poor's staðfestir lánshæfismatseinkunn Arion banka
Standard & Poor's hefur staðfest lánshæfismatseinkunn Arion banka, BBB-/A-3, með stöðugum horfum.
Að mati Standard & Poor's eru helstu styrkleikar bankans sterk eiginfjár- og vogunarhlutföll, stöðug markaðsstaða með jafnvægi milli einstaklings- og fyrirtækjamarkaða og loks sterk lausafjárstaða sem nægir til að mæta væntu útflæði innstæðna í tengslum við afléttingu fjármagnshafta.
Helstu veikleikar bankans að mati Standard & Poor‘s eru óvissa tengd losun gjaldeyrishafta, að innlent efnahagslíf er fábrotið og býður upp á litla möguleika til dreifingar á tekjum og eignum og að afkoma bankans einkennist enn af háum einsskiptisliðum.
S&P lánshæfismat nóvember 2015