Fræðslufundur um fjárfestingarleiðir, ávöxtun,uppbyggingu og sérstöðu Lífeyrisauka

Á fundinum mun Snædís Ögn Flosadóttir, rekstrarstjóri Lífeyrisauka hjá Arion banka og Hjörleifur Arnar Waagfjörð, forstöðumaður Eignastýringar fagfjárfesta hjá Arion banka, fara yfir ávöxtun, fjárfestingarleiðir og uppbyggingu Lífeyrisauka. Fjallað verður m.a. um sérstöðu Lífeyrisauka, fjárfestingarstefnu og uppbyggingu ævilínu.
Fundurinn verður haldinn í Arion banka, Borgartúni 19, þriðjudaginn 9. apríl kl. 17:00. Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund og boðið verður upp á kaffiveitingar.
Allir velkomnir.