Velheppnaður morgunfundur Arion banka um fasteignamarkaðinn

Velheppnaður morgunfundur Arion banka um fasteignamarkaðinn

Velheppnaður morgunfundur Arion banka um fasteignamarkaðinn - mynd

Þann 6. nóvember hélt Arion banki morgunfund um horfurnar á íslenskum húsnæðismarkaði. Fundurinn fór fram í höfuðstöðvum bankans, Borgartúni 19, undir yfirskriftinni „Fasteignamarkaðurinn: Áskoranir & horfur“. Sérfræðingar bæði innan og utan bankans, ásamt kjörnum fulltrúum stærstu sveitarfélaganna, greindu stöðuna í fróðlegum erindum og pallborðsumræðum. Sama dag gaf bankinn út yfirgripsmikla skýrslu þar sem ástandið á íslenskum húsnæðismarkaði er krufið og spáð í þróunina á næstu árum. Hér fyrir neðan má lesa stuttar samantektir á inntaki hvers fyrirlesturs og nálgast glærusýningar frá fundinum.

Smelltu hér til að lesa skýrslu Arion greiningar, „Húsnæðismarkaðurinn: Von eða vandi?“

Opnunarerindi: Vonarglæta í erfiðu árferði

Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, forstöðumaður fasteigna og innviða, setti fundinn og bauð gesti velkomna. Í opnunarávarpi sínu skýrði Guðmunda frá því hvers vegna fasteignamarkaðurinn er mikilvægasti markaðurinn í starfsemi Arion banka – samanlagt mynda íbúðalán til einstaklinga og lán til fyrirtækja á fasteignamarkaði um 65% af lánabók bankans. Guðmunda sagði síðustu tvö ár hafa verið krefjandi á húsnæðismarkaði og taldi þar til ýmsar skýringar: hækkandi lóðaverð og byggingarkostnað, háa vexti, minna framboð á íbúðum og hert lánþegaskilyrði til íbúðakaupa. Guðmunda sagðist þó eygja vonarglætu hér og þar. Til að mynda verði spennandi að spá hvaða áhrif nýsamþykkt lög, sem auðvelda lífeyrissjóðum að koma að uppbyggingu á íbúðum til útleigu með því að rýmka heimildir sjóðanna til fjárfestinga í leigufélögum, koma til með að hafa. 

Hver er staðan á íslenskum fasteignamarkaði?

Horfðu á myndband þar sem sérfræðingar úr fasteigna- og fjármálageiranum meta helstu áskoranir á íslenskum húsnæðismarkaði eins og staðan er í dag og sömuleiðis á komandi árum. Fram koma: Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka; Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, yfirlögfræðingur HMS; Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns; og Örn V. Kjartansson, framkvæmdastjóri M3.

 

 

Húsnæðismarkaðurinn: Von eða vandi?

Næstur á svið var Kári S Friðriksson, hagfræðingur í greiningu Arion, sem fór í saumana á því hvers vegna fasteignaverð hefur sveiflast jafn mikið og raun ber vitni undanfarin ár. Kári benti á að húsnæði er í senn stærsta neysluvara og fjárfesting heimila og sömuleiðis eini þáttur hversdagslegrar neyslu okkar sem hækkað hefur í verði umfram laun á síðustu áratugum. Af þeim sökum verður sífellt erfiðara að hasla sér völl á íslenskum húsnæðismarkaði og eignast heimili. Í erindinu færði Kári fyrir því ýmis rök að íbúðamarkaðurinn gæti stefnt í tímabundna ládeyðu þrátt fyrir mikla fólksfjölgun og breytt fjölskyldumynstur. 

Heldur íbúðaverð áfram að hækka?

Samsetning íslensku þjóðarinnar hefur breyst hratt á síðustu árum. Þjóðin er orðin fjölþjóðlegri; fjölskyldumynstur hafa breyst; fólk lifir lengur. Í þessu myndbandi metur áhrifafólk úr fasteigna- og fjármálageiranum hvernig við getum tekið tillit til þessara stóru breytinga og tryggt ólíkum hópum þjóðarinnar bestu mögulegu lífsgæði á komandi árum.

 

 

Íbúðaþörfin stórlega vanmetin?

Síðasta erindi morgunfundarins flutti Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka. Sigurður fjallaði um þróun mannfjölda á landinu og ný búsetumynstur sem breytt hafa forsendum fyrir mati á íbúðaþörf á höfuðborgarsvæðinu. Hann benti á að þörfin væri verulega vanmetin, sýndi fram á að uppbygging nýrra íbúða væri alls ekki að svala þessari vaxandi þörf og að langt væri í leiðréttingu þar sem meðganga nýrra íbúða er að meðaltali um átján ár.

Glærusýning úr erindinu

Hvaða hlutverki gegna sveitarfélögin?

Horfðu á myndband þar sem valdir fulltrúar atvinnulífsins vega og meta hvert hlutverk hins opinbera ætti að vera á húsnæðismarkaðnum.

 

 

Líflegar umræður um húsnæðismarkaðinn

Að loknum flutningi erindanna þriggja stýrði Gísli Freyr Valdórsson, ritstjóri Þjóðmála, fjörlegum pallborðsumræðum. Þar mættust þau Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Egill Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Heimstaden og Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur.