Fullt út úr dyrum á viðburði með Troy Hunt

Fullt út úr dyrum á viðburði með Troy Hunt

Fullt út úr dyrum á viðburði með Troy Hunt - mynd

Ástralski netöryggissérfræðingurinn Troy Hunt hélt erindið „Það sem læra má af milljón gagnalekum“ í Arion banka fyrir sprengfullum sal mánudaginn 31. mars síðastliðinn.

Hunt er stofnandi fyrirtækisins Have I Been Pwned, eða HIBP, og heimsþekktur á sínu sviði. Hann er afar líflegur og skemmtilegur fyrirlesari, mikill sögumaður, og fór í erindi sínu yfir þær fjöldamörgu leiðir sem netskúrkar nota til að komast yfir persónuupplýsingar fólks og færa sér þær í nyt. Hunt lýsti enn fremur þeim aðferðum sem HIBP nýtir til að hjálpa fyrirtækjum og einstaklingum sem lenda í gagnalekum.

Auk Hunt fluttu erindi þau Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri, og Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis. Mætingin var frábær eins og myndirnar bera með sér og því miður komust færri að en vildu.

Arion banki leggur mikla áherslu á að tryggja öryggi viðskiptavina sinna á netinu. Viðburðurinn með Troy Hunt er liður í fræðsluátaki Arion um netöryggi en bankinn hefur til að mynda einnig staðið fyrir fjölmörgum fræðsluviðburðum fyrir eldri borgara. Frítt er inn á alla viðburði bankans af þessum toga.
 

Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis, Troy Hunt og Hákon Lennart Aakerlund, öryggisstjóri Arion banka.