Til hamingju Kaldvík með skráningu á First North

Í morgun voru hlutabréf Kaldvíkur, áður Ice Fish Farm, tekin til viðskipta á First North vaxtarmarkaði Nasdaq Iceland.
Guðmundur Gíslason, forstjóri Kaldvíkur, hringdi bjöllunni ásamt framkvæmdastjórn, stjórn félagsins og Magnúsi Harðarsyni, forstjóra Nasdaq Iceland, við bryggju Randúlffssjóhúss á Eskifirði þar sem höfuðstöðvar félagsins eru til húsa.
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka þakkar Kaldvík hjartanlega fyrir traustið við undirbúning skráningar og töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á First North.
Jafnframt viljum við nýta tækifærið og óska starfsfólki, stjórn og hluthöfum innilega til hamingju með áfangann.