Gríðarmikill áhugi á fjárfestingarkeppnum framhaldsskólanna og háskólanna
Efri röð frá vinstri: Alexander Sigurðarson, Ingvar Atli, Vilhjálmur Geirsson og Daníel Árnason. Neðri röð frá vinstri: Magnús Benediktsson, Óliver Orri Bergmann, Pétur Rúnarsson, Alexander Jónsson og Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Markaða hjá Arion banka.Í október héldum við tvær fjárfestingarkeppnir, annars vegar fyrir framhaldsskólanema og hins vegar háskólanema. Samtals tóku hátt í 1000 nemendur þátt í keppnunum. Kynjahlutföllin voru 27% konur og 72% karlar.
Sigurvegari háskólakeppninnar ávaxtaði sína upphæð, samtals tíu milljónir króna, um rúmar þrjár milljónir króna á þeim mánuði sem keppnin stóð yfir. Keypti hann meðal annars í hlutafélögunum Amaroq Ltd, Alvotech, Hampiðjunni og Festi.
Sigurvegari framhaldsskólakeppninnar ávaxtaði upphæðina sína um rúmar 1,6 milljónir. Þar skilaði Oculus Holdings AG honum sigrinum - en hann tók sénsinn og setti alla upphæðina sína á það félag.
Háskólakeppni - sigurvegarar:
- Alexander Jónsson (HR)
- Daniel Árnason (HR)
- Ingvar Atli (HÍ)

Frá vinstri: Alexander Sigurðarson, einn af eigendum Dyngju, Magnús Benediktsson, einn af eigendum Dyngju, Daníel Árnason 2.sæti, Alexander Jónsson 1.sæti, Ingvar Atli 3.sæti og Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Markaða hjá Arion banka.
Framhaldsskólakeppni - sigurvegarar:
- Pétur Rúnarsson (Flensborg)
- Óliver Orri Bergmann (Verzló)
- Vilhjálmur Geirsson (Verzló)

Frá vinstri: Óliver Orri Bergmann 2.sæti, Pétur Rúnarsson 1.sæti, Vilhjálmur Geirsson 3. sæti og Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Markaða hjá Arion banka.