Lokadegi Startup Reykjavik fagnað
Lokadagur viðskiptahraðalsins Startup Reykjavik fór fram föstudaginn 26. ágúst sl. fyrir fullu húsi gesta.
Áður en teymin tíu, sem unnið hafa að sínum viðskiptahugmyndum í allt sumar, kynntu sig, tóku til máls bankastjóri Arion banka, Forseti Íslands, Marta Sjögren frá sænska frumtaksfjárfestingasjóðnum Northzone og Armann Kojic, stofnandi fyrirtækisins Apon.
Marta Sjögren veitti gestum innsýn í fjárfestingar í frumkvöðlafyrirtækjum á Norðurlöndunum og Armann Kojic talaði um reynslu sína af Kísildalnum í Kaliforníu.
Að því loknu kynntu Startup Reykjavik fyrirtækin sig hvert og eitt með sjö mínútna kynningu:
| Platome | Framleiðir næringu fyrir stofnfrumur til að flyta fyrir þróun á stofnfrumumeðferðum |
| Convex | Skemmtilegur fyrstu persónu ævintýraleikur þar sem notendur byggja upp eigin persónu |
| Strivo | Nethugbúnaður sem hjálpar sjúkraþjálfurum og einkaþjálfurum að setja upp æfingaprógrömm, fylgjast með árangri og halda utan um viðskiptavini með nýjum og skemmtilegum hætti |
| Icelandic Lava Show | Mögnuð sýning þar sem alvöru bráðið hraun rennur inn í sýningarsal og yfir ís með tilheyrandi sjónarspili |
| Noted | Vettvangur fyrir nemendur til að deila glósum og námsefni sín á milli |
| Isold Film | Lána- og fjárfestingasjóður fyrir kvikmynda- og sjónvarpsgerð |
| Drexler | Leikjadrifinn tónlistarsamfélagsmiðill |
| Flow VR | Býður upp á upplifun tengda nútíma hugleiðslu og vellíðan |
| TotalHost | Gerir AirBnB leigusölum kleift að fá greiddar söluþóknun fyrir bókaðar ferðir innanlands |
| SÖLVA Chocolates | Framleiðir hágæða súkkulaði búið til frá grunni úr lífrænum hráefnum |
Óhætt er að segja að góður rómur hafi verið gerður að kynningum fyrirtækjanna og mikil ánægja á meðal gesta.
„Húrra fyrir Startup Reykjavik þið toppuðuð ykkur aftur í ár. Pitchin voru kraftmikil, fagleg og skemmtileg“, sagði Svana Gunnarsdóttir, fjárfestingastjóri og eigandi hjá Frumtak. Marta Sjögren hjá Northzone sagði í viðtali við Norðurskautið að gæði kynninganna hefðu komið sér á óvart, fyrirtækin hefðu komið sínum viðskiptahugmyndum skilmerkilega á framfæri á skemmtilegan hátt og að hún myndi strax í kjölfarið setja sig í sambandi við a.m.k. tvö fyrirtækjanna.
Startup Reykjavik og fjárfestadagurinn eru óneitanlega orðin einn af hápunktum ársins í íslensku sprotaumhverfi þar sem fjárfestar og aðrir áhugasamir kynnast því besta sem gerist á Íslandi á þessu sviði.
Myndir frá deginum má sjá á Facebook-síðu Startup Reykjavík.