Gleðin skein úr augum ólympíufaranna í móttöku þeim til heiðurs
Íslensku keppendurnir á Ólympíuleikum fatlaðra í Ríó voru heiðraðir í móttöku sem haldin var þeim til heiðurs í höfuðstöðvum Arion banka síðastliðinn fimmtudag. Það má með sanni segja að þau hafi unnið hug og hjörtu íslendinga með frammistöðu sinni og framkomu á leikunum.
Þau sem kepptu fyrir hönd Íslands voru: Thelma Björg Björnsdóttir, Sonja Sigurðardóttir og Jón Margeir Sverrisson sem kepptu í sundi, Helgi Sveinsson sem keppti í frjálsum íþróttum og Þorsteinn Halldórsson keppti í bogfimi, fyrstur Íslendinga.
Við hjá Arion banka erum stolt af því að styðja við Íþróttasamband fatlaðra.
Mynd: F.h. Thelma Björg Björnsdóttir, Sonja Sigurðardóttir, Jón Margeir Sverrisson, Þorsteinn Halldórsson, Helgi Sveinsson og Þórður Árni Hjaltested, varaformaður Íþróttasambands fatlaðra.