Arion banki breytir vöxtum íbúðalána
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands breytast vextir óverðtryggðra íbúðalána Arion banka í dag, 14. október. Jafnframt breytast vextir verðtryggðra íbúðalána vegna hærri fjármögnunarkostnaðar.
Breytilegir vextir þegar veittra lána hækka 30 dögum eftir tilkynningu þar um en öll ný útlán bera nýju vextina.
Breytingarnar eru eftirfarandi:
Óverðtryggð íbúðalán
- Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 7,59%
- Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir eru óbreyttir og eru áfram 7,75%
Verðtryggð íbúðalán
- Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,75 prósentustig og verða 2,94%
- Verðtryggðir fastir 5 ára íbúðalánavextir hækka um 0,75 prósentustig og verða 2,94%
Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.
Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.