17. október 2017
LEI-auðkenni fyrir lögaðila
Frá og með 3. janúar 2018 mun Fjármálaeftirlitið gera kröfu um að allir lögaðilar hafi sérstakt LEI-auðkenni (Legal Entity Identifier) vegna viðskipta með skráð verðbréf og fjármálagerninga sem skráðir eru á skipulegan verðbréfamarkað.
Arion banki hefur tekið saman helstu upplýsingar um LEI-auðkenni og gert þær aðgengilegar á sérstakri upplýsingasíðu.