Arion banki í 25. sæti á jafnréttislista Allbright

Arion banki í 25. sæti á jafnréttislista Allbright

Arion banki í 25. sæti á jafnréttislista Allbright - mynd

Allbright stofnunin í Svíþjóð hefur nú lokið úttekt á þeim 333 skráðu fyrirtækjum sem skráð eru í kauphöllina í Svíþjóð út frá stöðu jafnréttismála. Arion banki er í 25. sæti í ár, en var í 17. sæti í fyrra. Í úttektinni er fyrst og fremst horft til hlutfalls kynja í stjórn og framkvæmdastjórn fyrirtækja.

Fram kemur í skýrslunni að oft séu það erlendu fyrirtækin í kauphöllinni sem dragi meðaltalið niður en tekið er fram að Arion banki sé þar meðal undantekninganna og sé þvert á móti eitt af þeim fyrirtækjum sem standa sig hvað best varðandi jöfn kynjahlutföll í stjórn og framkvæmdastjórn.

Skýrslan er aðgengileg hér.