Ævintýrið að byrja að búa

Að flytjast að heiman markar stórt skref í lífi okkar flestra. Við segjum skilið við verndað umhverfi foreldrahúsanna og vöknum skyndilega á heimili þar sem enginn minnir okkur á að setja alla skítugu sokkana í vélina, fylla á ísskápinn og salta tröppurnar þegar frýs yfir nóttina. Við berum ábyrgð á öllu heimilishaldinu sjálf – þar með talið fjármálunum.
Gerðu fjárhagsáætlun fyrir heimilið - það margborgar sig
Eitt það fyrsta sem við mælum með, þegar fólk byrjar að búa, er að taka saman létt yfirlit um fjármál heimilisins. Þetta þarf nú ekki að vera neitt flókið: Berðu fastan mánaðarlegan kostnað einfaldlega saman við tekjur þínar. Ef til vill nýtast þar eftirfarandi viðmið:
- 50% fastur kostnaður; húsnæði, afborganir, matur, samgöngur
- 30% breytilegur kostnaður; skemmtun, föt og skór, veitingahús, heilsurækt, áhugamál
- 20% sparnaður; fjárfestingar eða sparnaðarreikningur
Áætlun af þessum toga er auðvitað ekki heilög. Þó er skynsamlegt að reyna að halda sig við einhver viðmið.
Stóra spurningin: Leigja eða kaupa?
Fjárhagsstaða og fjárhagsleg markmið þín skera auðvitað úr um hvort best hentar að leigja eða kaupa fasteign. Kannaðu endilega báða möguleika áður en þú tekur ákvörðun. Ef niðurstaðan verður kaup á fasteign er mikilvægt að hafa í huga að samkvæmt núgildandi reglum Seðlabanka Íslands á eftirfarandi við um fyrstu kaupendur fasteigna:
- Útborgun er í minnsta lagi 15% af kaupverði
- Húsnæðislán dekkar að hámarki 85% af kaupverði
- Greiðslubyrði húsnæðislána má að hámarki vera 40% af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum*
Til móts við eigin sparnað má svo sækja um að nýta hluta af viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst upp í útborgun á fyrstu fasteigninni sem þú kaupir.
*Mánaðarlegar ráðstöfunartekjur eru þær tekjur sem standa eftir þegar búið er að draga frá skatta- og gjöld frá launum þínum.
Ekki hika við að heyra í okkur
Við vitum að fyrstu fasteignakaup eru risastór ákvörðun. Þér er vitaskuld alltaf velkomið að hafa samband við ráðgjafana okkar. Við hjálpum þér að finna bestu niðurstöðuna.