13. október 2016
Aðalbjörg A. Gunnarsdóttir ráðin útibússtjóri Arion banka á Snæfellsnesi
Aðalbjörg A. Gunnarsdóttir sem gegnt hefur starfi þjónustustjóra Arion banka á Grundarfirði hefur verið ráðin útibússtjóri bankans á Snæfellsnesi í stað Kjartans Páls Einarssonar sem látið hefur af störfum.
Aðalbjörg mun jafnframt taka við stjórnun útibúsins í Búðardal og verður hún því útibússtjóri þriggja útibúa bankans á Vesturlandi, í Grundarfirði, Búðardal og Stykkishólmi.
Aðalbjörg hefur unnið hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 2001 eða í rúm 15 ár og gegnt margvíslegum störfum innan bankans.