Arion banki breytir vöxtum
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast í dag, 13. maí.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Óverðtryggð íbúðalán
- Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,80 prósentustig og verða 5,59%
- Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir hækka um 0,61 prósentustig og verða 6,75%
Kjörvextir
- Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,70 prósentustig og verða 6,60%
Yfirdráttur og greiðsludreifing
- Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 1,00 prósentustig
Bílalán
- Kjörvextir bílalána hækka um 0,70 prósentustig og verða 7,00%
Innlán
- Breytilegir óverðtryggðir innlánavextir hækka ýmist um allt að 1,00 prósentustig eða haldast óbreyttir en vextir á t.d. veltureikningum haldast óbreyttir
Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.
Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.