Skiptir hönnun máli í viðskiptalífinu?
Tengsl við viðskiptalífið skiptir miklu máli þegar kemur að því að koma hönnun á framfæri, eins og við komum aðeins inn á hér. En að sama skapi skiptir hönnun viðskiptalífið máli, í raun mikið meira máli en flestir gera sér grein fyrir.
Fyrirtæki nýta sér í vaxandi mæli hönnuði til þess að skapa sér sess í samkeppnisumhverfi. Hönnunarstiginn skilgreinir það hversu stórt hlutverk hönnun leikur hjá fyrirtækjum. Sum fyrirtæki hafa alltaf verið leiðandi í að gera hönnun að miðpunkti vörumerkisins (t.d. Apple) og leitast við að vera í efsta þrepi á meðan önnur átta sig á þessu hægt og bítandi og mjaka sig áfram skref fyrir skref.
1. stig: Engin hönnun: Hönnun er ómarktækur þáttur í þróun vöru eða þjónustu, framkvæmd af öðrum en hönnuðum.
2. stig: Hönnun sem stílfærsla: Hönnun er aðeins mikilvæg út frá útlitslegum eiginleikum, stíl og notkun.
3. stig: Hönnun sem ferli: Hönnun er hluti af þróunarferli vöru eða þjónustu en er ekki í leiðandi hlutverki.
4. stig: Hönnun sem nýsköpun: Hönnun er óaðskiljanlegur hluti af nýsköpunarferlinu og hönnuðir taka þátt í stefnumótun.
Heimild: Hönnunarmiðstöð
Hönnun gerir fyrirtæki eftirminnileg
Við byrjum á því að meðtaka það sem við sjáum myndrænt og ákveðum strax hvort okkur finnst það aðlaðandi. Ef ekki eru litlar líkur á því að við kynnum okkur viðfangsefnið nánar. Góð hönnun skilur eftir sig ógleymanlega mynd í huga áhorfandans. Góð hönnun laðar að viðskiptavini sem vilja koma aftur.
Hönnun hjálpar fyrirtækjum að marka sér sérstöðu
Frumleg, vönduð og fáguð hönnun getur hjálpað fyrirtækjum að marka sérstöðu sína og gera sig og vörumerki sitt eftirminnilegt og gildandi í hinu stóra samhengi. Hönnun vörumerkis, vefsíðu, útgefins efnis, herferða og svo framvegis er afar mikilvæg til þess að búa til vörumerki sem fólk er tilbúið til þess að standa með.
Hönnuðir reyna að skilja hvernig fyrirtæki eru rekin
Bakvið hverja hönnun er mikil hugsun þar sem hönnuðurinn reynir að greina bæði þarfir kúnnahópsins og fyrirtækisins. Hönnunin verður að hæfa tilgangi fyrirtækisins og þegar hönnuður fer af stað kynnir hann sér starfsemi og innviði fyrirtækisins, fólkið sem vinnur þar og grundvallarmarkmið þess.
Hönnuðir passa líka að upplýsingar séu skýrar og settar fram með skilmerkilegum hætti. Þetta á ekki síst við um fjármálageirann þar sem oft þarf að setja fram upplýsingar sem geta auðveldlega misskilist ef ekki er farið að með fagmannlegum hætti. Hönnuðir eru þjálfaðir til þess að koma skilaboðum áleiðis myndrænt.
- Góð hönnun eykur framleiðni og árangur fyrirtækja
- Góð hönnun gerir fyrirtæki samkeppnishæf
- Góð hönnun getur blásið fyrirtækjum byr undir báða vængi
- Góð hönnun gerir starfsmenn stolta af vinnustað sínum
- Góð hönnun er mikilvægur þáttur í að hámarka árangur
Heimild: Hönnunarmiðstöð