Arion banki breytir vöxtum
.jpg)
Í dag, miðvikudaginn 24. apríl, taka eftirfarandi breytingar á útlánavöxtum Arion gildi:
Íbúðalán
- Verðtryggðir fastir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 4,24%
Föstudaginn 26. apríl, taka eftirfarandi breytingar á innlánavöxtum Arion gildi:
Innlán
- Vextir veltureikninga lækka um allt að 0,85 prósentustig
- Vextir óverðtryggðra sparireikninga lækka um allt að 0,10 prósentustig
- Vextir gjaldeyrisreikninga lækka um allt að 0,10 prósentustig
Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.
Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.