31. janúar 2017
Húsnæðismarkaðurinn: Enn í leit að jafnvægi
Greiningardeild Arion banka hefur nú birt nýja skýrslu um íbúðamarkaðinn. Skýrslan var kynnt á fundi í Arion banka nú síðdegis. Í skýrslunni má finna ýmsar upplýsingar sem snúa að þessum mikilvæga markaði, t.d. um eftirspurn, verðþróun, áætlanir um byggingu íbúða og verðspá.
Húsnæðismarkaðurinn: Enn í leit að jafnvægi
Helstu niðurstöður:
- Húsnæðisverð hefur hækkað sífellt hraðar síðustu mánuði og nam árshækkunin á höfuðborgarsvæðinu í desember 15%.
- Önnur svæði hafa tekið við sér síðustu mánuði og hefur húsnæðisverð utan höfuðborgarsvæðisins hækkað um 20% sl. 12 mánuði. Sú hækkun er að mestu leyti drifin áfram af mikilli hækkun húsnæðisverðs í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins.
- Hagstætt efnahagsástand, fólksfjölgun, kaupmátturaukning og gott aðgengi að fjármögnun hafa stutt við hækkanir á húsnæðisverði og munu líklega gera áfram.
- Hækkun húsnæðisverðs skýrist einnig af því að of lítið hefur verið byggt síðustu ár og áætlanir hafa ekki staðist. Byggja þarf a.m.k. 8.000 íbúðir á næstu þremur árum til að halda í við fólksfjölgun og er þá ekki tekið fyllilega tillit til uppsafnaðrar þarfar. Samkvæmt okkar spá er ólíklegt að sá fjöldi náist.
- Leiguverð hefur hækkað hægar en húsnæðisverð síðastliðin tvö ár og er hlutfall húsnæðisverðs og leiguverðs að nálgast langtímameðaltal. Lítið framboð og ótrygg búseta hafa sett svip sinn á leigumarkaðinn en svokölluðum Leiguheimilum er m.a. ætlað að tækla þann vanda.
- Við spáum 14% hækkun húsnæðisverðs í ár, 9,7% á næsta ári og 7,5% árið 2019. Spáin er háð ströngum forsendum og leiðir sviðsmyndagreining í ljós að breyttar forsendur geta aukið eða slegið á verðhækkanir.
- Íbúðamarkaðurinn er vel heitur um þessar mundir og útlit fyrir að hann hitni ennþá meira gangi spá okkar eftir. Nú þegar glittir í gul ljós á sumum svæðum þar sem verð hefur hækkað sérlega mikið.
- Gangi spáin eftir er útlit fyrir að húsnæðisverð hækki talsvert umfram flestar undirliggjandi hagstærðir á borð við kaupmátt ráðstöfunartekna. Til lengri tíma er því ástæða til að vara við ofhitnun á markaðinum.