Skert þjónusta í appi og netbanka

Skert þjónusta í appi og netbanka

Skert þjónusta í appi og netbanka - mynd

Vegna rekstrartruflunar verður skert virkni í appi og netbanka í dag. Búið er að greina vandann og unnið að lagfæringu sem lýkur að öllum líkindum ekki fyrr en á morgun, fimmtudag.

Þannig verður í dag ekki hægt að sækja um lán í appi eða netbanka, stofna kredit- eða debetkort eða innlánsreikning.

Við hvetjum viðskiptavini til að koma til okkar í útibú eða hringja í þjónustuver til að fá aðstoð við framangreinda þjónustu. Sama gildir um þá sem vilja stofna til viðskipta við Arion, það verður í dag aðeins hægt í útibúi eða þjónustuveri.

Að auki tefst útborgun samþykktra lána fram yfir páskahelgina.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.