Skiptir lánstími máli?

Þegar nýtt lán er tekið getur það skipt sköpum á hversu löngum tíma greiða skal lánið til baka. Það er misjafnt hver hámarkstími lána getur verið en lengst er lánað fyrir fasteignakaupum til 40 ára.
Augljósasti munurinn á mismunandi lánstíma er að eftir því sem lengri lánstíminn er því lægri eru afborganirnar og eignamyndun hægari þar sem endurgreiðsla höfuðstólsins dreifist á fleiri gjalddaga. Hér skal þó tekið fram að mismunandi tegund afborgana, jafnar greiðslur eða jafnar afborganir, getur haft áhrif á þetta.
Það sem skal einnig hafa í huga þegar lánstíminn er skoðaður er vaxtakostnaður. Vextir leggjast á lánið og því lengur sem það tekur að endurgreiða lánið, þeim mun hærri er uppsafnaður vaxtakostnaður.
Það sem ræður oftast lánstímanum er greiðslugeta lántakanda og þegar hún er skoðuð er mjög mikilvægt að hafa vaðið fyrir neðan sig og spenna bogann ekki um of. Það gæti verið skynsamara að ráða vel við afborganirnar en greiða síðan aukalega inn á lánið ef þú hefur tök á því frekar en að taka lán í styttri tíma og ráða ekki við greiðslurnar.