08. október 2020
Við aukum þjónustu við eldri borgara

Í ljósi aðstæðna og vegna tímabundinnar lokunar útibúa höfum við ákveðið að bjóða eldri borgurum aukna þjónustu með því að bæta við þjónustuvali í símsvarann okkar.
Með því að velja 4 þegar hringt er í þjónustuverið í síma 444 7000 fá eldri borgarar forgang að þjónusturáðgjöfum sem aðstoða við hvaðeina sem snýr að bankaþjónustu. Ef erindið er brýnt og krefst heimsóknar í útibú þá finnum við tíma sem hentar.