Áhugasamir nemendur á Framadögum
Arion banki tók þátt í Framadögum háskólanna sem haldnir voru í Háskólanum í Reykjavík í gær. Á Framadögum kemur fjöldi fyrirtækja saman og gefst nemendum frábært tækifæri til að kynnast helstu fyrirtækjum landsins og starfsmöguleikum sem að þau bjóða upp á. Viðburðurinn var á vegum ungmennasamtakanna AIESEC og skipulagður af nemendum úr háskólum landsins.
Dagurinn gekk mjög vel og fjölmargir áhugasamir nemendur spurðust fyrir um þau 170 sumarstörf sem í boði verða næsta sumar hjá Arion banka. Þá sýndu nemendur mikinn áhuga á stafrænum lausnum bankans sem einnig voru kynntar.
Hér meðfylgjandi má sjá myndir frá deginum.