Arion banki lækkar vexti

Arion banki lækkar vexti

Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19 - myndHöfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19

Breytilegir innlánavextir bankans munu í mörgum tilfellum haldast óbreyttir þrátt fyrir stýrivaxtalækkun en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05-0,25 prósentustig. Útlánavextir lækka um að allt að 0,25 prósentustig.

Helstu breytingar sem taka gildi 11. desember eru eftirfarandi:

  • Yfirdráttarvextir lækka um allt að 0,25 prósentustig
  • Breytilegir vextir verðtryggðra íbúðalána lækka um 0,20 prósentustig
  • Breytilegir vextir óverðtryggðra íbúðalána lækka um 0,10 prósentustig
  • Kjörvextir og kjörvextir bílalána lækka um 0,10 prósentustig
  • Breytilegir innlánavextir bankans munu í mörgum tilfellum haldast óbreyttir en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05-0,25 prósentustig