28. apríl 2023
Kortareikningar eru nú gefnir út af Rapyd Europe en ekki Valitor

Kortafyrirtækin Valitor og Rapyd Europe hafa sameinast og verða reikningar vegna notkunar á VISA-kreditkortum framvegis gefnir út af Rapyd Europe hf. en ekki Valitor.
Af þessum sökum birtist núna í netbanka og appi nýr kröfuhafi Vísa reikninga sem er Rapyd Europe hf.
Sameiningin hefur ekki aðrar breytingar í för með sér fyrir viðskiptavini.