Afkoma Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins 2015
Hagnaður Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 nam 25,4 milljörðum króna samanborið við 22,6 milljarða króna á sama tímabili 2014. Markast afkoma tímabilsins mjög af óreglulegum liðum líkt og á árinu 2014. Skipta þar mestu einskiptisatburðir eins og sala bankans á hlutum í fasteignafélaginu Reitum, alþjóðlega drykkjaframleiðandanum Refresco Gerber og Símanum hf. í tengslum við skráningu félaganna í kauphöll. Arðsemi eigin fjár var 19,8% samanborið við 19,9% á sama tímabili árið 2014. Hagnaður af reglulegri starfsemi á tímabilinu nam 13,5 milljörðum króna samanborið við 11,4 milljarða á sama tímabili 2014. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi nam 11,2% á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 10,1% á sama tímabili 2014. Heildareignir námu 1.009,5 milljörðum króna samanborið við 933,7 milljarða króna í árslok 2014.
Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 23,5% en var 26,3% í árslok 2014. Lækkunin er einkum tilkomin vegna arðgreiðslu að fjárhæð 12,8 milljarðar króna og fyrirframgreiðslu á víkjandi lánum frá ríkinu að fjárhæð 20 milljarðar króna. Hlutfall eiginfjárþáttar A nam 22,2% samanborið við 21,8% í árslok 2014.
Helstu atriði árshlutareikningsins:
- Hagnaður eftir skatta nam 25,4 mö.kr. samanborið við 22,6 ma.kr. á sama tímabili 2014.
- Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 13,5 mö.kr. samanborið við 11,4 ma.kr. á sama tímabili 2014.
- Eiginfjárhlutfall nam 23,5% í lok tímabils samanborið við 26,3% í árslok 2014.
- Arðsemi eigin fjár var 19,8% samanborið við 19,9% á sama tímabili 2014. Af reglulegri starfsemi nam arðsemin 11,2% á tímabilinu, samanborið við 10,1% á sama tímabili 2014.
- Hreinar vaxtatekjur námu 20,3 mö.kr. samanborið við 18,3 ma.kr. á sama tímabili 2014.
- Hreinar þóknanatekjur námu 10,7 mö.kr. samanborið við 10,1 ma.kr. á sama tímabili 2014.
- Rekstrartekjur hækka umtalsvert á milli ára og námu 50,4 mö.kr. samanborið við 38,3 ma.kr. á sama tímabili 2014. Mikil hækkun rekstrartekna er einkum tilkomin vegna söluhagnaðar og hækkunar á verðmati á eignarhlutum í Reitum fasteignafélagi hf., Refresco Gerber og Símanum hf. í tengslum við skráningu félaganna á markað 2015.
- Hrein virðisbreyting er neikvæð á tímabilinu og nemur 0,1 ma.kr., samanborið við 2,9 ma.kr. jákvæða virðisbreytingu á sama tímabili 2014. Hrein virðisbreyting lána hjá dótturfélaginu AFL – sparisjóði var neikvæð á tímabilinu og nam 1,7 ma.kr. eins og kom fram í hálfsárs uppgjöri bankans. Hrein virðisbreyting annarra lána samstæðunnar var jákvæð um sambærilega fjárhæð.
- Tekjuskattur nam 3,6 mö.kr. samanborið við 4,4 ma.kr. á sama tímabili 2014.
- Kostnaðarhlutfall var 38,4% en var 48,7% á sama tímabili 2014. Af reglulegri starfsemi nam kostnaðarhlutfall 49,7% samanborið við 54,6% á fyrstu níu mánuðum ársins 2014.
- Eigið fé bankans var 174,8 ma.kr. en nam 162,2 mö.kr. í lok árs 2014.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Afkoma Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins er góð. Hún markast nokkuð af hagnaði af sölu á eignarhlutum í félögum í óskyldum rekstri í tengslum við skráningu þeirra á markað. Ljóst er að í framtíðinni mun draga úr áhrifum slíkra þátta á afkomu bankans sem þá verður borin uppi af hefðbundinni fjármálastarfsemi. Við erum vel undir þetta búin enda höfum við á undanförnum árum lagt áherslu á að styrkja grunnstoðirnar í rekstri bankans.
Mörg stór og spennandi verkefni hafa verið kláruð á fyrstu níu mánuðum ársins. Bankinn hefur staðið að baki öllum þremur nýskráningum í kauphöll það sem af er ári og þannig eflt hlutabréfamarkaðinn og komið endurskipulögðum félögum í dreift eignarhald. Mikill áhugi er á hlutafjárútboðum og framkvæmd þeirra. Við tökum mark á málefnalegri gagnrýni og munum breyta verklagi okkar þar sem við á. Arion banki kemur einnig að byggingu fimm stjörnu hótels við Hörpu og í október gerðum við samning um kaup á tryggingafélaginu Verði sem bíður afgreiðslu eftirlitsaðila.
Eins og við höfum áður getið um hefur tekist vel að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans á liðnum misserum. Þróun á eftirmarkaði með skuldabréf bankans á alþjóðlegum mörkuðum er jákvæð og hækkun lánshæfismats S&P upp í fjárfestingaflokk mun bæta enn frekar aðgengi að alþjóðlegum lánsfjármörkuðum.“
Fundur með markaðsaðilum
Arion banki mun halda símafund á ensku fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 12. nóvember, klukkan 13:00. Á fundinum mun Stefán Pétursson, fjármálastjóri Arion banka, fara yfir helstu atriði í uppgjöri bankans. Áhugasamir geta sent tölvupóst á ir@arionbanki.is og fá í kjölfarið sendar innhringiupplýsingar.
Afkomutilkynning Arion banka 9 M 2015
Árshlutareikningur Arion banka 30. september 2015
Fjárfestakynning Arion banka 9 M 2015