28. nóvember 2022
Kynningarfundur um kolefnisjöfnun í höfuðstöðum Arion banka

Á morgun, þriðjudaginn 29. nóvember, kl. 8.30-10.00 verður haldinn fundur á vegum Staðlaráðs Íslands, Arion banka, Deloitte á Íslandi, Loftslagsskrár og Klappa grænna lausna um kolefnisjöfnun.
Á fundinum verða flutt erindi þar sem ný tækniforskrift um kolefnisjöfnun verður kynnt og hvernig hún mun nýtast á þeirri vegferð fyrirtækja að kolefnisjafna reksturinn sinn og einnig við framleiðslu á vottuðum kolefniseiningum.
Dagskrá fundar:
- Opnunarávarp
Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs - Innihald tækniforskriftar
Guðmundur Sigbergsson, framkvæmdastjóri Loftslagsskrár Íslands - Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir fyrirtæki?
Gunnar S. Magnússon, meðeigandi og yfirmaður sjálfbærni og loftslagsmála hjá Deloitte á Íslandi - Hvaða áhrif hefur þetta á sjálfbærniuppgjörið?
Þorsteinn Svanur Jónsson, stofnandi Klappa - Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir loftslagsverkefni?
Guðný Nielsen, stofnandi SoGreen og Ingibjörg Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Yggdrasill Carbon - Hver staðfestir þetta?
Kaviraj Singh, framkvæmdastjóri hjá vottunaraðilanum Earthood Services
Fundarstjóri er Hlédís Sigurðardóttir, sjálfbærnistjóri hjá Arion banka.
Öll velkomin.