Arion banki tekur þátt í átaksverkefninu #Hvetja

Arion banki tekur þátt í átaksverkefninu #Hvetja

Arion banki tekur þátt í átaksverkefninu #Hvetja - mynd

#HVETJA er samstarfsverkefni Hjólreiðafélags Reykjavíkur, Íþróttabandalags Reykjavíkur og Rauða krossins. Bakhjarlar verkefnisins eru Arion banki, Íslensk erfðagreining, VÍS og 66°Norður.

#HVETJA er átaksverkefni sem snýst um að auka jákvæðni í samfélaginu og passa upp á líkamlegt og andlegt heilbrigði. Félagslega tengslanetið okkar er ekki hið sama og venjulega og ástandið er farið að taka á okkur öll að einhverju leyti. Andleg heilsa er mjög mikilvæg á þessum tímum og hreyfing er ein af helstu stoðum andlegs heilbrigðis. Við það að fara út í stutta stund komum við blóðrásinni á hreyfingu, fáum dagsbirtu og upplifum stolt og gleði yfir því að taka þessi skref og #HVETJA aðra áfram. Við þurfum að öllum líkindum að lifa með veirunni næstu vikur og mánuði og því skiptir miklu máli að við snúum bökum saman, aukum jákvæðni í samfélaginu og pössum upp á hvert annað.

#HVETJA átakið hefst í dag, 28. október, með því að um 250 manns fara út og hreyfa sig, birta það á samfélagsmiðlum og um leið #HVETJA með jákvæðum skilaboðum þrjá aðra einstaklinga til að fara líka út að hreyfa sig. Þannig látum við boltann rúlla.

Átakið gengur út á eftirfarandi:

  1. Fara út og hreyfa sig (t.d. ganga, hlaupa, skokka, hjóla, á línuskauta eða hjólabretti. Öll hreyfing er í boði og enginn ákveðinn tímarammi er á hreyfingunni).
  2. Deila hreyfingunni á samfélagsmiðlum, svo sem Facebook, Instagram, Snapchat eða Twitter með því að setja inn myllumerkið #HVETJA.
  3. #HVETJA þrjá aðra með JÁKVÆÐUM skilaboðum til að fara líka út að hreyfa sig.

Með þessu móti erum við að senda út og fá fullt af jákvæðri og uppbyggjandi hvatningu og hreyfa okkur. Hvort tveggja stuðlar að betri heilsu og líðan. Nú sem fyrr skiptir máli að við stöndum saman, sjáum ljósið í deginum og pössum upp á hvert annað.

Allar upplýsingar um verkefnið má finna á @HVETJA á facebook.com.