Arion banki stækkar markflokka sértryggðra skuldabréfa
Arion banki hf. lauk í gær útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi.
Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 340.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,06% og óverðtryggði flokkurinn ARION CB 22 var stækkaður um 2.980.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 6,68%.
Heildareftirspurn í útboðinu var 6.420.000.000 kr.
Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem teknir hafa verið til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 3. febrúar næstkomandi.