23. febrúar 2021
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19
Arion banki lækkar fasta óverðtryggða íbúðalánavexti
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19Arion banki hefur lækkað óverðtryggða íbúðalánavexti fasta til þriggja ára úr 4,49% í 4,20%. Lækkunin tekur gildi í dag, 23. febrúar 2021.
Vextir íbúðalána með föstum vöxtum ráðast einna helst af stöðu á skuldabréfamarkaði og þeim tækifærum sem bankinn hefur til að fjármagna slík lán. Vaxtalækkunin nú kemur í kjölfar þess að ávöxtunarkrafa sértryggðra skuldabréfa bankans hefur lækkað á síðustu mánuðum og aukinnar eftirspurnar eftir sértryggðum skuldabréfum bankans.