Ferðaþjónustuúttekt Greiningardeildar Arion banka
Greiningardeild Arion banka kynnti í morgun árlega ferðaþjónustuúttekt sína. Greiningardeildin spáir því að ferðamönnum fjölgi um tæp 39% í ár, um 27% á næsta ári en að svo hægi á vextinum. Árið 2019 áætlar deildin að erlendir ferðamenn verði 2,7 milljónir. Spánni fylgir mikil óvissa og getur flugframboð, gengi krónunnar, innviðir ferðaþjónustunnar og aðrir þættir haft mikil áhrif. Brýnt er að fjárfesta í innviðum og nauðsynlegt er að ná samstöðu um gjaldtöku í ferðaþjónustu.
Ferðaþjónustuúttekt Greiningardeildar: Ferðamannalandið Ísland - Draumaland eða Djöflaeyja?
Sjá glærur frá morgunfundi
Helstu niðurstöður:
- Greiningardeild Arion banka spáir að vöxtur í komum ferðamanna slái öll met í ár en að hægja taki síðan á vextinum. Spáin hljóðar upp á 2,2 milljónir ferðamanna á næsta ári og að fjöldinn fari upp í 2,5 milljónir árið 2018.
- Vægi ferðaþjónustunnar í vergri landsframleiðslu og atvinnuvegafjárfestingu hefur farið vaxandi undanfarin ár. Út frá ólíkum mælikvörðum má ætla að landsframleiðslan væri um 4-8% lægri en hún er í dag ef ekki hefði komið til uppgangs í ferðaþjónustunni.
- Sterkara gengi krónunnar hefur hingað til haft lítil áhrif á neyslu ferðamanna. Áhrifin eru þó sýnileg og gætu magnast upp ef gengi krónunnar styrkist enn frekar.
- Neyslumynstur ferðamanna, dvalartími og dvalarstaðir er mjög mismunandi eftir þjóðernum. Slíkar upplýsingar geta verið gagnlegar þegar kemur að því að markaðssetja íslenska ferðaþjónustu og dreifa ferðamönnum í tíma og rúmi.
- Afkoma í ferðaþjónustu hefur stórbatnað og fjárhagur er sterkari en áður fyrr. Litlar vísbendingar er að sjá um útlánabólu í ferðaþjónustu.
- Nýting hótela hefur batnað sl. misseri víðast hvar á landinu. Verð gistingar í Reykjavík hefur hækkað um tæp 40% í evrum á þremur árum. Greiningardeild áætlar að um 2.500 hótelherbergi verði byggð í Reykjavík fram til ársins 2020.
- Aukinn ferðamannafjöldi eykur álag á hagræna innviði landsins eins og flugvelli, hafnir og vegakerfi. Einnig getur ferðamannastraumurinn reynt á félagslegu innviðina eins og heilbrigðiskerfið og löggæsluna.
- Að mati deildarinnar er brýnt að fjárfesta í samgöngum og þá sérstaklega vegakerfinu en einnig mætti efla innanlandsflug til að dreifa ferðamönnum betur um landið.
- Til að fjármagna fjárfestingu hins opinbera í innviðum er brýnt að ná samstöðu um sanngjarna gjaldtöku. Sem dæmi mætti hækka gistináttaskatt og að auka beina gjaldtöku á einstaka ferðamannastöðum.