Uppfærð efnahagsspá

Arion greining hefur uppfært efnahagsspána er birt var í apríl. Útlit er fyrir að hagvöxtur verði nokkuð minni en áður var talið, eða 0,5% í ár. Breytinguna má fyrst og fremst rekja til lakari stöðu ferðaþjónustunnar, sem vegur á móti þróttmeiri innlendri eftirspurn. Einnig spilar 4% samdráttur á fyrsta ársfjórðungi veigamikið hlutverk. Gert er ráð fyrir lítilsháttar minni aukningu í komum ferðamanna til landsins, en það sem meira máli skiptir er aukinn samdráttur í neyslu ferðamanna. Líkt og greinendur hafa fjallað um að undanförnu hefur gæðum undirliggjandi gagna hrakað og því erfitt að henda reiður á stöðuna, en í ljósi þess að Arion greining vinnur með opinberar tölur þá óhjákvæmilega hafa fyrirliggjandi gögn áhrif á sýn og spá.
Hvað varðar innlenda eftirspurn þá hefur seigla einkaneyslunnar undanfarna mánuði valdið greinendum heilabrotum. Uppfærð hagspá gerir þannig ráð fyrir 1,1% vexti einkaneyslu í stað 0,4%, en mestu munar um fyrri hluta ársins sem stefnir í að verða sterkari en áður var talið. Kröftugri eftirspurnarþrýstingur lyftir verðbólguspánni örlítið upp á við, ásamt minni gengisstyrkingu en áður var spáð, og því líklegt að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni halda að sér höndum er kemur að vaxtabreytingum, að minnsta kosti fram í nóvember.
Hafa ber í huga að um er að ræða uppfærslu á eldri hagspá miðað við nýjustu þjóðhagsreikninga og aðrar skammtímavísbendingar. Ný fjárfestingakönnun liggur ekki fyrir, né nýjar greiningar á ýmsum ytri breytum. Langtímahorfurnar hafa þar af leiðandi lítið breyst, en ítarlegri greining er væntanleg á haustmánuðum.
Hagspá - sumar 2024: Róðurinn þyngist
.png)