Samkomulag á milli Arion banka og Árna Odds

Samkomulag á milli Arion banka og Árna Odds

Samkomulag á milli Arion banka og Árna Odds - mynd

Arion banki gekk að hlutabréfum í Eyri Invest hf. í lok október síðastliðins í kjölfar veðkalls vegna lánssamnings Árna Odds Þórðarsonar við bankann. Bréfin hafa verið auglýst til sölu á vef bankans. Nú hafa Arion banki og Árni Oddur komist að samkomulagi um fullnaðaruppgjör vegna umræddrar fullnustu.

Samhliða sátt, hefur fjárfestahópur að baki félagsins 12 Fet ehf., sem Árni Oddur er í forsvari fyrir, átt viðskipti með hluti í Eyri Invest hf. Eftir viðskiptin er bankinn ekki lengur hluthafi í Eyri Invest hf. Kaupverð er trúnaðarmál.