08. júní 2015
Tímabundin lokun sjóða í rekstri Stefnis
Það tilkynnist hér með að Stefnir hf. hefur tekið þá ákvörðun að fresta viðskiptum með eftirtalda sjóði:
- Stefnir – Ríkisvíxlasjóður
- Stefnir – Ríkisverðbréfsjóður stuttur
- Stefnir – Ríkisbréfasjóður óverðtryggður
- Stefnir – Ríkisskuldabréf verðtryggð
- Stefnir – Ríkisverðbréfasjóður millilangur
- Stefnir – Ríkisverðbréfasjóður langur
- Stefnir – Skuldabréf stutt
- Stefnir – Eignastýringarsjóður
- Stefnir – Samval
- Stefnir – Skuldabréfaval
- Stefnir – Kjarabréf
- Eignaval A
- Eignaval B
- Eignaval C
- Eignaval Hlutabréf
- Stefnir – ÍS 15
- Fagfjárfestasjóðurinn ÍS-5
Ákvörðunin er tekin í ljósi tilkynningar um lokun fyrir viðskipti með fjármálagerninga skv. tilkynningu nú í morgun.
Frestunin tók gildi kl. 09:20 þann 8. júní 2015, er almenn og tekur til allra hlutdeildarskírteina sjóðanna.
Fjárfestar eru hvattir til að fylgjast með upplýsingum og tilkynningum um málefni sjóðanna á heimasíðu Stefnis hf.