Arion banki stærstur á hlutabréfamarkaði sjötta árið í röð
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19Arion banki var með mestu hlutdeild markaðsaðila með hlutabréf í Kauphöll Íslands árið 2021. Þetta kemur fram í gögnum frá Nasdaq Iceland. Arion banki velti hlutabréfum fyrir tæplega 455 milljarða króna á árinu sem samsvarar 21,5% hlutdeild og jókst veltan um 74% á milli ára. Þetta er sjötta árið í röð sem Arion banki er með mestu hlutabréfaveltu í kauphöll.
Arion banki var einnig með mestu hlutdeildina á First North markaðinum eða 46,2%.
Velta Arion banka með skuldabréf í Kauphöllinni var um 400 milljarðar króna á árinu 2021 sem samsvarar 17,2% hlutdeild sem var sú næst mesta á meðal markaðsaðila.
Í heildina var Arion banki var með mestu samanlögðu hlutdeild markaðsaðila í verðbréfaviðskiptum í kauphöllinni árið 2021.