Arion banki býður á fyrstu handboltaleiki vetrarins í Garðabæ

Arion banki býður á fyrstu handboltaleiki vetrarins í Garðabæ

Arion banki býður á fyrstu handboltaleiki vetrarins í Garðabæ - mynd

Arion banki tekur þátt í Handboltadegi Stjörnunnar sem fram fer á morgun, 10. september, frá kl. 11.30-18.00 í TM höllinni. Í tilefni 40 ára afmælis útibúsins í Garðabæ mun Arion banki jafnframt bjóða á fyrstu handboltaleiki vetrarins sem fram fara á deginum, en Stjarnan og Haukar mætast í meistaraflokki kvenna kl. 13.30 og Stjarnan og Akureyri í meistaraflokki karla kl. 16.00.

Dagskrá Handboltadags Stjörnunnar:

Kynning á vetrarstarfinu
Leiktæki, hoppukastali og skothraðamæling
Bíbí, blaki og Ari frá Sparilandi, kl. 12.00-13.00
Andlitsmálun í boði Arion banka, kl. 12.00-13.00

Stjarnan - Haukar kl. 13.30 mfl. kvenna
Stjarnan - Akureyri kl. 16.00 mfl. karla

Vöfflur, pylsur, kaffi og safi í boði fyrir alla.